Fréttir
Formaður BÍ gagnrýnir tillögur verkefnisstjórnar Samráðsvettvangs um aukna hagsæld
Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, gagnrýndi harðlega tillögur verkefnisstjórnar Samráðsvettvangs um aukna hagsæld varðandi landbúnað á umræðufundi Samtaka mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja síðasta miðvikudag.
Áfram
Tuttugu ESB-ríki eru með hærra hlutfall neysluútgjalda til matvæla en Ísland
Hlutfall útgjalda til matvörukaupa samkvæmt nýjustu tölum Eurostat á árinu 2013 sýna að Íslendingar verja 13% heildarútgjalda sinna til kaupa á matvörum en meðaltal ESB-ríkja er 14%
Áfram
Hver á að framleiða matinn okkar? Upptaka af fyrirlestri á Netinu
Bændasamtök Íslands boða til hádegisfundar mánudaginn 15. apríl um fæðuöryggi og mikilvægi þess að þjóðir nýti náttúrulegar aðstæður til framleiðslu á mat. Hvaða leiðir eiga Íslendingar að velja til að tryggja fæðuöryggi og leggja sitt af mörkum í matvælaframleiðslu heimsins?
Áfram
Handverkskonur milli heiða og Laxárdalur II hlutu Landbúnaðarverðlaunin
Landbúnaðarverðlaunin 2013 voru veitt við setningu búnaðarþings á sunnudaginn var. Að þessu sinni hlutu bændurnir í Laxárdal II og handverkshópurinn Handverkskonur milli heiða verðlaunin.
Áfram
Framleiðsluverðmæti landbúnaðar var 51,8 milljarðar árið 2011
Hagstofa Íslands hefur gefið út Hagreikninga landbúnaðarins fyrir árin 2007-2011. Þetta er í fyrsta sinn sem Hagstofan gefur út hagreikninga fyrir landbúnað í samræmi við samræmda evrópska aðferðafræði.
Áfram
Ný prentmiðlakönnun Capacent: 31% landsmanna les Bændablaðið
Bændablaðið, sem gefið er út af Bændasamtökum Íslands, tók í fyrsta skipti þátt í stóru prentmiðlakönnun Capacent á síðasta ársfjórðungi. Helstu niðurstöður eru þær að Bændablaðið er með 31% meðallestur yfir landið allt, algjöra yfirburði á landsbyggðinni með 51% lestur ...
Áfram
Allt um ferðaþjónustu bænda sumarið 2013
Enskur kynningarbæklingur Ferðaþjónstu bænda, Beint frá býli og Opins landbúnaðar er kominn út vegna ársins 2013. Í bæklingnum er hægt að finna upplýsingar um alla bæi innan vébanda Ferðaþjónustu bænda auk upplýsinga um nokkra aðila ...
Áfram
Verðskrá BÍ vegna ráðstöfunar fjár vegna ullarnýtingar
Þann 23. nóvember sl. staðfesti atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra verklagsreglur Bændasamtaka Íslands um ráðstöfun fjár vegna ullarnýtingar. Reglurnar voru birtar í Stjórnartíðindum sama dag. Sunnudaginn 25. nóvember ...
Áfram
Landbúnaðarvefir ekki virkir á milli 17 og 18
Í dag, mánudaginn 7. janúar, verður nettengin á Keldnaholti rofin vegna viðgerða á milli kl. 17:00 og 18:00. Ýmsir landbúnaðarvefir, sem eru vistaðir hjá LbhÍ, verða því ekki virkir um stund. Þar á meðal er bondi.is og bbl.is.
Áfram
Upplýsingar um jarðræktarstyrki á Bændatorginu
Þann 28. desember sl. voru jarðræktarstyrkir vegna ræktunar ársins 2012 greiddir út til bænda. Styrkirnir eru greiddir úr sjóði sem er fjármagnaður af búnaðarlagasamningi, mjólkursamningi og sauðfjársamningi. Styrkurinn nam 13.350 kr. á fyrstu 20 ha, en 8.900 kr. á ræktun frá 20 – 40 ha. Ræktun umfram 40 ha var ekki styrkt.
Áfram
Nýráðningar hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins ehf.
Búið er að ganga frá ráðningum í stjórnunarstöður hjá nýju ráðgjafarfyrirtæki bænda sem tekur formlega til starfa um áramótin. Fyrirtækið, sem mun heita „Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins ehf.“, verður til eftir sameiningu ...
Áfram
Slæmur aðbúnaður á ekki að líðast
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, kom fram í fréttaviðtali í kvöldfréttum Sjónvarps í gærkvöldi þar sem hann fordæmdi alla meðferð á gripum sem sjást á myndum Matvælastofnunar ...
Áfram
Bændur samþykkja búvörusamninga
Hinn 24. nóvember 2012 voru atkvæði talin úr póstatkvæðagreiðslu um sauðfjársamning og mjólkursamning.
Í mjólkursamningi voru niðurstöðurnar þær að 87,1% sögðu "já" en 11,1% "nei". Á kjörskrá voru 1.229 en kjörsókn 36%. Sauðfjársamningur var samþykktur með 91,1% greiddra atkvæða."Nei" sögðu 6,7%. Á kjörskrá voru 2.755 og kjörsókn var 32,3%.
Áfram
Framkvæmdastjóri NorFór
Samnorræna félagið NorFór óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í hálft starf. Félagið NorFór starfrækir nýtt norrænt kerfi til fóðurmats og fóðuráætlanagerðar fyrir nautgripi. Félagið er í eigu fjögurra aðila ...
Áfram
"Jólabók sauðfjárbóndans"
Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna veturinn 2012-2013 er komin á vefinn. Áætlað er að prentaða útgáfan komi út 14. nóvember nk. og verður henni fylgt úr hlaði með kynningum í sveitum landsins eins og venja er. Fundaplan verður birt á vefnum og í Bændablaðinu þegar ...
Áfram
Næstu bændafundir
Næstu bændafundir verða haldnir á Egilsstöðum á þriðjudaginn og í Húnavatnssýslu og Skagafirði á fimmtudaginn. Fundirnir verða sem hér segir:
Áfram
Leiðbeiningaþjónusta bænda í eitt félag
Aukabúnaðarþing 2012, sem haldið var mánudaginn 29. október, samþykkti að stofna skuli sérstakt félag um leiðbeiningaþjónustu bænda. Mikil samstaða var um sameiningu leiðbeiningaþjónustu á landsvísu ...
Áfram
Bændafundir fram undan
Bændafundir verða haldnir á næstu dögum og vikum. Að þessu sinni eru nokkrir fundanna haldnir í samvinnu við LK og LS. Rætt verður um nýja búnaðarlagasamninginn og framlengda búvörusamninga ...
Áfram
Opnun á skrifstofum BÍ
Lágmarksstarfsemi er á skrifstofum BÍ vegna sumarleyfa þessa dagana. Skiptiborðið verður lokað dagana 23. júlí til 7. ágúst en beint símanúmer Bændablaðsins ...
Áfram
Opið hús hjá bændum í ferðaþjónustu, Opnum landbúnaði og Beint frá býli
Bændur innan vébanda Ferðaþjónustu bænda, Opins landbúnaðar og Beint frá býli munu bjóða gestum í opið hús sunnudaginn 10. júní kl. 13:00 - 17:00. Á vefsíðunni sveit.is má sjá lista með þeim bæjum sem taka þátt.
Áfram
Starfsemi BÍ
Bændasamtök Íslands eru heildarsamtök allra bænda í landinu en félagsmenn eru um 6.000 talsins. Hjá Bændasamtökunum starfa um þessar mundir um 50 manns en stöðugildin eru alls 48. Meginstarfsstöðin er í Bændahöllinni í Reykjavík ...
Áfram
Jarðræktarrannsóknir 2011
Fræðslurit LbhÍ nr. 41, Jarðræktarrannsóknir 2011 er komið út. Í ritinu eru allar helstu niðurstöður jarðræktartilrauna á árinu 2011 auk yfirlits um tíðarfar og helstu veðurtölur ...
Áfram
Tollar og íslenskur landbúnaður
Nýlega kom út hjá Bændasamtökunum bæklingur um tolla og íslenskan landbúnað. Í ritinu er farið yfir tollaumhverfi íslensks landbúnaðar og landbúnaðarstefnu stjórnvalda. Einnig er dregin upp mynd af alþjóðasamningum um viðskipti með landbúnaðarvörur, svo sem við Evrópusambandið og Alþjóðaviðskiptastofnunina.
Áfram
Sumarstörf á Bændablaðinu
Bændasamtök Íslands óska eftir að ráða tvo starfsmenn í sumarafleysingar á Bændablaðinu. Tímabil frá miðjum júní og fram í miðjan ágúst. Gerð er krafa um að starfsmenn hafi reynslu af blaðamennsku og markaðsmálum. Bændablaðið kemur að jafnaði út á tveggja vikna fresti og er gefið út af Bændasamtökum Íslands.
Áfram
Orka og búskapur – ráðstefna í Bændahöll
Opin ráðstefna um orku og búskap verður haldin föstudaginn 9. mars í Bændahöllinni í tengslum við árlegan ráðunautafund. Umfjöllunarefnið er orkunotkun í íslenskum landbúnaði og þau tækifæri sem gætu leynst í orkubúskap á íslenskum bújörðum.
Áfram
Um fjármál Bændasamtaka Íslands
Bændasamtökin eru frjáls félagasamtök og í bókhaldi þeirra er skilið á milli þeirra fjármuna sem koma frá ríkinu vegna búnaðarlagasamnings og fjármuna sem fara í að reka hagsmunabaráttu bænda. Verkefni í gegnum búnaðarlagasamning eru ...
Áfram
Hrossakjötskafli Kjötbókarinnar opnaður
Um miðjan september sl. var vefritið Kjötbókin, www.kjotbokin.is, formlega opnað, þegar fyrsti kaflinn um lambakjöt var gerður aðgengilegur.Nú er annar kafli tilbúinn en hann snýst um hrossakjöt.
Áfram
Opnunartímar skrifstofu BÍ yfir hátíðarnar
Skrifstofur Bændasamtaka Íslands verða opnar sem hér segir yfir hátíðarnar:
- fimmtudagur 22. desember: Lokað
- föstudagur 23. desember, Þorláksmessa: Lokað
- mán. 26. desember: Lokað
Áfram
Ráðstefna um nautgriparækt – Glærur
Fagráð í nautgriparækt stóð fyrir ráðstefnu 30. nóvember 2011 þar sem tekin voru fyrir málefni er tengdust kynbótastarfi í nautgriparækt. Á ráðstefnunni, sem haldin var í Bændahöllinni, var m.a. rætt um árangur kynbótastarfsins ...
Áfram
Vegna umræðu um stjórnsýsluverkefni
Fréttastofa Ríkisútvarpsins flutti 26. október sl. frétt um stjórnsýsluverkefni sem Bændasamtök Íslands sinna. Þar kom fram að ekki væri sjáanlegt á framlögðu fjárlagafrumvarpi að flytja ætti verkefni frá BÍ til Matvælastofnunar þrátt fyrir ábendingar þar um frá Ríkisendurskoðun. Í fréttinni er því haldið fram að ríkisvaldið greiði ...
Áfram
Julian Cribb: Upptökur og fréttaumfjöllun
Húsfyllir var á fyrirlestri Julian Cribb sem haldinn var í vikunni í höfuðstöðvum Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýri. Hér á vefnum er hægt að nálgast upptökur af fundinum ásamt ýmsum viðtölum og annarri umfjöllun í tengslum við fundinn:
Áfram
Nýr kjarasamningur fyrir landbúnaðarverkafólk
Bændasamtök Íslands hafa samið við Starfsgreinasamband Íslands annars vegar og hins vegar Framsýn stéttarfélag, Verkalýðsfélag Þórshafnar og verkalýðsfélag Akraness um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk sem vinnur ...
Áfram
Rýniskýrsla ESB um íslenskan landbúnað – viðbrögð BÍ
Evrópusambandið hefur nú tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að Ísland sé ekki nægilega búið undir samninga um landbúnaðarmál í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Í bréfi ESB frá 1. september 2011 segir efnislega að ...
Áfram
Fjár- og stóðréttir haustið 2011
Eins og undanfarin ár hafa Bændasamtökin tekið saman lista yfir helstu fjárréttir og stóðréttir á landinu á komandi hausti. Samkvæmt upplýsingum Bændasamtakanna verða fyrstu fjárréttir haustsins laugardaginn 3. september nk. en þá verður réttað á sex stöðum norðanlands, í Eyjafirði, Skagafirði og Húnavatnssýslum. Fyrsta stóðrétt haustsins verður einnig sama dag, Miðfjarðarrétt í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu.
Áfram
Varnarlínum BÍ dreift með Bændablaðinu
Bændasamtökin gáfu nýlega út í miðopnu Bændablaðsins sk. varnarlínur samtakanna í aðildarviðræðum stjórnvalda við Evrópusambandið. Þær voru fyrst birtar í heild sinni sem viðauki í bók Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors um landbúnaðarlöggjöf ESB og Evrópska efnahagssvæðisins sem gefin var út fyrr í sumar.
Áfram
Ný Handbók bænda
Handbók bænda er nú komin út í fimmtugasta og níunda sinn. Í bókinni kennir ýmissa grasa en auk hefðbundins efnis sem uppfært er á milli útgáfa er að finna mikið af nýju efni. Þar má m.a. nefna gæðakröfur fyrir bygg, upplýsingar um repjurækt, áburðarefni í mykju, upplýsingar um villta matsveppi í náttúrunni og leiðbeiningar um meðferð íslenska fánans ásamt fleiru.
Áfram
Haustfundir Landssamtaka sauðfjárbænda
Landssamtök sauðfjárbænda gangast fyrir opnum haustfundum þessa dagana. Fundirnir verða haldnir á sjö stöðum á landinu dagana 16.-18. ágúst. Formaður, framkvæmdastjóri og stjórnarmenn í í LS munu þar fjalla um stöðu og horfur innan greinarinnar.
Áfram
Æðarsetur Íslands í Stykkishólmi
Æðarsetur Íslands var opnað með hátíðlegri viðhöfn á annan í hvítasunnu í Norska húsinu í Stykkishólmi. Það var frú Dorrit Moussaieff sem klippti á borða og opnaði setrið formlega en hún er jafnframt verndari þess.
Áfram
Yfirlit um jarðræktarrannsóknir 2009-2010
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur gefið út skýrslu um jarðræktarrannsóknir áranna 2009-2010. Ýmist eru niðurstöður tilrauna eða viðfangsefna birtar fyrir hvort ár um sig eða samandregnar fyrir bæði árin eftir eðli tilrauna. Meðal annars er í ritinu að finna upplýsingar um áburðartilraunir og yrkjaprófanir í korn- og túnrækt, ýmsar tilraunir með matjurtir ásamt upplýsingum um veðurfar og vöxt áranna 2009 og 2010.
Áfram
"Upp í sveit 2011" dreift í 30 þúsund eintökum
Bæklingurinn „Upp í sveit 2011“ kom út í síðustu viku en í honum eru nákvæmar upplýsingar um bæi sem starfa undir merkjum Ferðaþjónustu bænda, Beint frá býli og Opins landbúnaðar. Upp í sveit er prentaður í 30 þúsund eintökum og er dreift um allt land á helstu ferðamannastöðum í sumar.
Áfram
Upplýsingar til bænda vegna eldgoss í Grímsvötnum
Matvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar og orðsendingu til bænda á vef sínum vegna eldgossins í Grímsvötnum. Þar er fjallað um viðbrögð við öskufalli, flóðahættu, slys og sjúkdóma og þolmörk búfjár fyrir flúori í fóðri og drykkjarvatni.
Áfram
Eldgos í Grímsvötnum
Kröftugt eldgos er hafið í Grímsvötnum og mikils öskufalls gætir í Skaftafellssýslum, frá Mýrdalssandi í vestri og austur fyrir Freysnes í Öræfum. Þjóðvegurinn er lokaður frá Klaustri og austur að Freysnesi og ekkert ferðafæri er á svæðinu þar sem öskufallið er mest. Skyggni til gosstöðvanna er ekkert og íbúar og ferðamenn á svæðinu eru hvattir til að halda kyrru fyrir og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.
Áfram
Bændur kynna vörur og þjónustu á Íslandsperlum
Helgina 21.-22. maí verður ferðasýningin Íslandsperlur haldin í Perlunni. Bændur í Ferðaþjónustu bænda, Beint frá býli og Opnum landbúnaði verða með bás á sýningunni og kynna sínar vörur og þjónustu. Sýningin er árleg en bæklingurinn „Upp í sveit 2011“ kemur út á sama tíma.
Áfram
Upptökur frá Fræðaþingi landbúnaðarins
Fræðaþing landbúnaðarins var haldið um miðjan mars sl. í Reykjavík. Hér á vefnum eru upptökur af flestum fyrirlestrum aðgengilegar þar sem hægt er að sjá bæði glærur og hlusta á erindin.
Áfram
Bændatorgið komið í notkun
Bændatorg, upplýsingagátt fyrir bændur og ráðunauta, er ný vefþjónusta frá BÍ sem er komin í notkun. Í hægra horninu uppi á bondi.is er hnappur sem heitir "Bændatorg". Þegar smellt er á hann birtist innskráningargluggi inn á Bændatorgið þar sem notendur geta náð í margvíslegar upplýsingar úr sínum búrekstri.
Áfram
Bændablaðið í 30 þúsund eintökum
Bændablaðinu er í dag dreift í aukaupplagi til allra fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og í helstu þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni. Heildarupplag er því rúm 30 þúsund eintök. Tilgangurinn er að vekja athygli á blaðinu en síðustu ár hefur dreifing...
Áfram
Aðild Íslands að ESB - afstaða BÍ
Búnaðarþingi var slitið á tíunda tímanum í kvöld en meðal síðustu mála kvöldsins var ályktun um ESB-málin og aðkomu bænda að umsóknarferli ríkisstjórnarinnar. Ályktunin hljóðar svo í heild sinni ásamt greinargerð:
Áfram
Matvælaframleiðsla á krossgötum - MYNDBAND
Á setningu Búnaðarþings 2011 var frumsýnt stutt myndband um matvælaframleiðslu í heiminum og þróun hennar. Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ, og hagfræðingarnir Daði Már Kristófersson og Erna Bjarnadóttir fjalla þar öll um misjöfn áhrif fólksfjölgunar, skort á ræktunarlandi og breytt loftslags- og ræktunarskilyrði á matvælaframleiðslu.
Áfram
Fræðaþingið verður haldið 10.-11. mars
Fræðaþing landbúnaðarins 2011 verður haldið dagana 10. - 11. mars á Hótel Sögu. Þingið er samvinnuverkefni 9 stofnana sem tengjast landbúnaði með einum eða öðrum hætti. Að þessu sinni verður eldgosið í Eyjafjallajökli m.a. í brennidepli en í málstofu um það verður m.a. rætt um áhrif þess á samfélag, búskap, dýralíf og gróður. Viðamikil dagskrá verður um hrossarækt og hestamennsku og horft verður til framtíðar varðandi skógrækt hér á landi.
Áfram
Ný nautaskrá
Innan skamms verður ný nautaskrá send til allra kúabænda en hún er nú þegar aðgengileg á vefnum (sækja pdf). Í skránni eru nú 25 naut úr nautaárgöngum 2002-2004. Nautum úr árgangi 2002 fer nú fækkandi en sá árgangur var mjög öflugur í samanburði við flesta aðra.
Áfram
Bændafundir framundan
Almennir haustfundir Bændasamtakanna hófust mánudaginn 22. nóvember og standa þeir til 6. desember. Alls verða fundirnir 16 talsins og verða þeir haldnir um allt land. Á fundunum verða m.a. rædd þau tækifæri sem landbúnaðurinn hefur til þess að efla þjóðarhag og hvar sóknarfæri liggja.
Áfram
Alþjóðasamtök búvöruframleiðenda, IFAP, úrskurðuð gjaldþrota
Þann 4. nóvember kvað hæstiréttur Frakklands upp þann dóm að Alþjóðasamtök búvöruframleiðenda, IFAP (International Federation of Agricultural Producers), skyldu tekin til gjaldþrotameðferðar. Þetta mál mun eiga sér allnokkurn aðdraganda og...
Áfram
Undrast fálmkennd og ómarkviss viðbrögð vegna dóms Hæstaréttar
Bændasamtök Íslands og Landssamband smábátaeigenda hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna ólögmætis gengistryggðu lánanna:
Áfram
Norskir bændur sýna Íslendingum samstöðu - 7 milljónir íslenskra króna lagðar í styrktarsjóð vegna eldgossins
Norska bændahreyfingin og fleiri fyrirtæki í Noregi hafa ákveðið að styðja við bakið á íslenskum bændum sem hafa orðið fyrir neikvæðum áhrifum af gosinu í Eyjafjallajökli. Þeir hafa lagt 7 milljónir íslenskra króna í sjóð sem Bændasamtökum Íslands er ætlað að ráðstafa til þeirra bænda sem eiga í hlut.
Áfram
Landbúnaður á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli – staða, horfur og aðkallandi aðgerðir
Dagana 11. og 12. maí fóru rúmlega 20 héraðs- og landsráðunautar ásamt fleirum í heimsóknir á 120 bú á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Tilgangurinn var að ræða við bændur og m.a. meta með þeim aðstæður og þörf fyrir aðstoð vegna fóðuröflunar og beitar í vor og í sumar. Úrvinnslu gagna er ekki að fullu lokið úr ferðinni en niðurstöður ættu að liggja fyrir í byrjun næstu viku.
Áfram
Opinn landbúnaður, Beint frá býli og Ferðaþjónusta bænda í Perlunni um helgina
Ferðasýningin Íslandsperlur verður haldin dagana 1. og 2. maí í Reykjavík, nánar tiltekið í Perlunni. Ferðaþjónusta bænda mun ásamt Beint frá býli og Opnum landbúnaði taka þátt í sýningunni en auk þessarra aðila standa að sýningunni markaðsstofur landshlutanna í ferðaþjónustu.
Áfram
Erlend bændasamtök senda íslenskum bændum kveðjur og hvatningarorð
Bændasamtökum Íslands hafa borist kveðjur og hvatningarorð til bænda á Íslandi vegna áhrifa eldgossins í Eyjafjallajökli. Norsku bændasamtökin, Norges bondelag, sendu í dag bréf til BÍ þar sem forsvarsmenn þeirra lýstu yfir stuðningi við þá bændur sem nú berjast við náttúruöflin og bjóða aðstoð sína ef þörf krefur. Þá sendi David King, aðalritari Alþjóðasamtaka búvöruframleiðenda, IFAP, íslenskum bændum góðar kveðjur og ítrekaði samstöðu IFAP með þeim. Kveðjur hafa borist víðar frá erlendum bændum og samtökum þeirra, m.a. frá Finnlandi og Svíþjóð.
Áfram
Hagtölur landbúnaðarins 2010
Hagtölur landbúnaðarins 2010 eru komnar út. Eins og fyrri ár er útgáfan í bæklingsformi og er alls 30 síður. Í Hagtölum landbúnaðarins er m.a. hægt að finna tölfræði um landið og bóndann, bústofn og bústærð, landbúnaðarframleiðsluna, markaðsmál, verðlag og vísitölur o.m.fl. Bæklingurinn fer víða - hann er m.a. vinsæll á meðal ferðamanna, skólafólks og að sjálfsögðu á meðal þeirra sem starfa í landbúnaði.
Áfram
Hraun á Skaga og Grænhóll í Ölfusi hljóta landbúnaðarverðlaun
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti bændunum á Hrauni á Skaga og Grænhóli í Ölfusi landbúnaðarverðlauninin 2010. Verðlaunin eru sem áður gripir úr höndum Ívars Björnssonar gullsmiðs og leturgrafara. Ráðherra sagði að tilgangurinn verðlaunanna væri einkum að vekja athygli á því sem vel er gert í landbúnaði.
Áfram
Búnaðarþing 2010 - Aftur kemur vor í dal
Búnaðarþing var sett við hátíðlega athöfn í Bændahöllinni í dag. Þar héldu ávörp Haraldur Benediktsson formaður BÍ, Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Brita Skallerud annar tveggja varaformanna norsku bændasamtakanna Norges bondelag og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís.
Áfram
Búnaðarþing á næsta leiti
Árlegt Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands hefst sunnudaginn 28. febrúar og stendur til miðvikudagsins 3. mars. Búnaðarþing verður sett með viðhöfn á sunnudaginn en yfirskrift setningarathafnarinnar er „Aftur kemur vor í dal“. Í vikunni verða hefðbundin þingstörf þar sem m.a. verður fjallað um mál sem tengjast umsókn stjórnvalda að Evrópusambandinu, jarðalögum, fjármálum bænda og uppbyggingu félagskerfis þeirra.
Áfram
Nautaskrá veturinn 2010
Nautaskrá vetrarins 2010 er nú aðgengileg á vefnum en hún fer í dreifingu innan tíðar. Uppsetning skrárinnar er með svipuðu sniði og undanfarin ár en hvert reynt naut fær kynningu á sínum eiginleikum. Útreikningar kynbótamats eru eins og á síðasta ári, allar einkunnir eru sambærilegar og gefa rétta mynd af stöðu nautanna óháð árgangi.
Áfram
Upptökur af Fræðaþingi á Netinu
Úrval af upptökum af fyrirlestrum af Fræðaþingi landbúnaðarins eru aðgengilegar á Netinu. Upptökurnar eru gerðar þannig úr garði að auðvelt er að hlaða þeim niður. Bæði er hægt að sjá glærur fyrirlesara og mynd- og hljóðupptökur.
Áfram
Sendiherrar funduðu um ESB og landbúnað í Bændahöllinni
Hópur sendiherra og starfsmanna sendiráða sem starfa á Íslandi komu til fundar við bændur í Bændahöllinni á dögunum. Það voru Bændasamtökin sem boðuðu til fundarins en tilgangurinn var að kynna íslenskan landbúnað fyrir sendifulltrúunum og afstöðu Bændasamtakanna í ESB-málunum.
Áfram
Alþjóðlegt ár líffræðilegrar fjölbreytni
Í dag er ýtt úr vör Alþjóðlegu ári líffræðilegrar fjölbreytni sem hefur kjörorðin Líffræðileg fjölbreytni er lífið - líffræðileg fjölbreytni er líf okkar. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir bændur um allan heim þar sem líffræðileg fjölbreytni og landbúnaður eru háð innbyrðis; hvort tveggja gegnir einnig lykilhlutverki í loftslags- og fæðuöryggismálum.
Áfram
Ný útgáfa af Sauðfjárbókinni komin út
Ný útgáfa af Sauðfjárbókinni er komin út og fæst hún hjá Bændasamtökunum. Sauðfjárbókin hefur verið gefin út frá árinu 1951 en þrátt fyrir að nú séu bændur í æ ríkari mæli að taka tölvutæknina í sína þjónustu gegnir bókin enn mikilvægu hlutverki í sauðfjárskýrsluhaldi.
Áfram
Bændur bjóða í kjötsúpuveislu
Í tengslum við matreiðsluþættina "Eldum íslenskt", sem sýndir eru á ÍNN og mbl.is, ætla bændur að bjóða upp á ekta íslenska kjötsúpu í verslunum Krónunnar á Granda og í Lindum Kópavogi fimmtudaginn 22. okt. og föstudaginn 23. okt. kl. 16:00.
Áfram
Hagtölur landbúnaðarins 2009 á ensku
Vakin er athygli á því að Hagtölur landbúnaðarins 2009 eru komnar út á ensku. Íslenska útgáfan er í vinnslu og er væntanleg á næstunni. Hægt er að nálgast prentútgáfu á skrifstofu Bændasamtakanna við Hagatorg eða fá þær sendar endurgjaldslaust. Vefútgáfuna er hægt að sækja á pdf-formi, á vefnum.
Áfram
Norrænir bændur funda í Reykjavík
Samtök norrænna bænda, NBC, halda aðalfund sinn í Reykjavík í þessari viku. Gestir fundarins eru allir helstu forvígismenn bænda á Norðurlöndunum auk þess sem Roger Johnson, formaður bandarísku bændasamtakanna (NFU), heiðrar samkomuna með nærveru sinni. Fundurinn er haldinn á Hótel Sögu og hefst miðvikudaginn 12. ágúst og lýkur föstudaginn 14. ágúst.
Áfram
Opinn landbúnaður kynntur víða
Út er kominn bæklingurinn „Upp í sveit 2009“ en þar eru birtar upplýsingar um bæi í Ferðaþjónustu bænda, Beint frá býli og í Opnum landbúnaði. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir þrír aðilar vinna saman að kynningarstarfi á gistingu, mat og afþreyingu í sveitinni.
Áfram
Bændafundir vegna breytinga á búvörusamningum
Kynningarfundir um breytingar á gildandi búvörusamningum um starfsskilyrði sauðfjárræktar og mjólkurframleiðslu verða haldnir um allt land á næstu dögum. Fundirnir eru öllum opnir en bændur sem starfa við mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt eru hvattir til að mæta á fundina og kynna...
Áfram
Upptökur frá framboðsfundinum í Hlégarði
Fimmtudaginn 16. apríl sl. voru haldnir fjórir fundir á vegum Bændasamtakanna með bændum og frambjóðendum til Alþingis. Þátttaka var mjög góð en um 350 manns mættu á fundina til samans. Nú liggja fyrir upptökur úr Hlégarði af framsögum Haraldar Benediktssonar, formanns Bændasamtaka Íslands, og frambjóðenda flokkanna.
Áfram
Bændur kynna landbúnaðardag kosningabaráttunnar – 16. apríl
Bændur hafa boðað til opinna funda í tengslum við alþingiskosningarnar á fjórum stöðum á landinu fimmtudagskvöldið 16. apríl. Öllum framboðum er boðið að senda sína fulltrúa og ræða um landbúnaðarmál við bændur, starfsfólk í landbúnaðargeiranum og aðra áhugasama fundargesti. Fundirnir hefjast allir kl. 20:30 fimmtudagskvöldið 16. apríl og verða haldnir á Hótel Selfossi, Hlégarði í Mosfellsbæ, Hótel Borgarnesi og á Hótel KEA á Akureyri.
Áfram
Einhugur á meðal bænda við lok Búnaðarþings 2009
Búnaðarþingi er lokið en því var slitið á áttunda tímanum í kvöld. Alls voru 34 mál afgreidd á þinginu og var áberandi einhugur meðal þingfulltrúa um afgreiðslu þeirra. Ber þar helst að nefna eindregna afstöðu gegn aðild...
Áfram
Búnaðarþing sett á sunnudag
Búnaðarþing verður sett sunnudaginn 1. mars næstkomandi klukkan 13.30 í Súlnasal á Hótels Sögu. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, flytur setningarávarp en yfirskrift setningarathafnarinnar að þessu sinni verður „Treystum á landbúnaðinn“. Emma Eyþórsdóttir dósent við Landbúnaðarháskóla...
Áfram
Myndir af opnun Nautastöðvar BÍ
Mikill fjöldi gesta var viðstaddur opnun Nautastöðvar BÍ í síðustu viku. Hér á vefnum eru nú aðgengilegar myndir sem teknar voru við það tilefni af þeim Áskeli Þórissyni, Erlu Hjördísi Gunnarsdóttur og Tjörva Bjarnasyni.
Áfram
Meginrök Bændasamtakanna gegn aðild að ESB
Bændasamtökin gáfu nýlega út kálf um íslenskan landbúnað og Evrópusambandið sem dreift var með síðasta Bændablaði. Þar er fjallað um skýra afstöðu Bændasamtakanna til aðildar að Evrópusambandinu og færð rök fyrir henni. Farið er yfir stefnu ESB í landbúnaðarmálum og sett fram möguleg áhrif hennar á búgreinar hér á landi.
Áfram
Húsfyllir á fundi um íslenskan landbúnað og ESB
Fjölmenni var á fundi Bændasamtaka Íslands um Evrópumál sem haldinn var í Sunnusal Hótels Sögu í gærkvöldi. Gestur fundarins var Christian Anton Smedshaug frá norsku bændasamtökunum en hann skýrði frá baráttu gegn aðild Noregs að Evrópusambandinu...
Áfram
Stuðningsyfirlýsing frá norrænum bændasamtökum
Bændasamtökum Íslands hefur borist stuðningsyfirlýsing frá norrænum systurhreyfingum þess. Í yfirlýsingunni lýsa bændasamtök Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands og Noregs sérstakri samstöðu með íslensku bændastéttinni í þeim erfiðu efnahagsaðstæðum sem nú eru uppi í íslensku þjóðfélagi.
Áfram
Bændafundir halda áfram
Mjög góð aðsókn hefur verið á bændafundi Bændasamtakanna sem haldnir hafa verið síðustu vikur. Yfirskrift fundanna er „Treystum á landbúnaðinn“ en frummælendur hverju sinni eru stjórnarmenn í Bændasamtökunum. Nú er búið að ákveða að halda fundi á Suður- og Vesturlandi í byrjun desember en þeir verða dagana 3. - 4. desember.
Áfram
Næsta námskeið í félagsmálafræðslu verður á Hvanneyri 26. - 27. nóvember
Ungmennafélag Íslands, Bændasamtökin og Kvenfélagasamband Íslands bjóða félagsmönnum sínum um allt land upp á félagsmálafræðslu í vetur undir yfirskriftinni "Sýndu hvað í þér býr". Hlutverk námskeiðsins er að sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum. Þátttakendur fá æfingu í ...
Áfram
Sýndu hvað í þér býr - félagsmálafræðsla í vetur
Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Þessir aðilar skrifuðu í dag undir samstarfssamning þar að lútandi í höfuðstöðvum UMFÍ við Laugaveg 170 í Reykjavík.
Áfram
Réttardagarnir haustið 2008 - leiðréttur listi
Listi yfir fjár- og stóðréttir fyrir haustið 2008 hefur verið gefinn út. Það er Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands sem hefur tekið listann saman. Hefur listinn nú verið leiðréttur miðað við nýjustu upplýsingar.
Áfram
Ræktun er menning - bás BÍ á Landbúnaðarsýningunni á Hellu
Starf bóndans á sér margar hliðar. En fyrst og fremst er hann ræktandi. Til þess að nýta landsins gæði, auðlindir okkar og landið er nauðsynlegt að kunna ábyrga nýtingu. Ræktun. Ræktun er nýting á fjölbreyttum möguleikum, hvort sem það er jörðin sjálf eða búféð. Samfélagið nýtur góðs af. Ræktun er menning…
Áfram
Handbók bænda 2008
Hvað er heppilegt hitastig í garðávaxtageymslum? Hvað eyða búvélarnar af olíu? Hver er meðgöngutími kúa? Hvar finn ég upplýsingar um vélaverktaka í landbúnaði? Hvað þarf mikinn áburð á grænfóðurakur?
Áfram
Opinn landbúnaður - heimsæktu sveitina í sumar!
Alls 32 bæir bjóða almenningi upp á heimsóknir í sveitina í tengslum við verkefnið "Opinn landbúnaður". Bæklingur með upplýsingum um bæina og ýmsum öðrum fróðleik um íslenskan landbúnað er kominn í dreifingu en hann verður m.a. aðgengilegur á þjónustumiðstöðvum...
Áfram
Fjármagnskostnaður að sliga búrekstur segir formaður BÍ
Í nýju Bændablaði kennir ýmissa grasa að venju en Haraldur Benediktsson formaður BÍ ritar leiðara um erfiða rekstrarstöðu bænda og aðgerðir Bændasamtakanna í þeim efnum. Einnig víkur hann að stöðu WTO-viðræðna og landbúnaði á alþjóðavísu. Blaðið má nálgast í heild sinni á pdf-formi með því að smella hér en leiðarinn er birtur hér á eftir:
Áfram
Morgunverðarfundur á degi líffræðilegrar fjölbreytni
Dagur líffræðilegrar fjölbreytni, 22. maí, er í ár tileinkaður landbúnaði. Umhverfisráðuneytið og Landgræðslan bjóða af því tilefni til morgunverðarfundar á Grand Hóteli á fimmtudegi kl. 08:00-10:00 þar sem fjallað verður um mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni fyrir landbúnað, næringu og matvælaöryggi.
Áfram
Opinn landbúnaður - vorheimsóknir í sveitina
Vorheimsóknir skólabarna í sveitina eru hafnar enda sauðburður víða kominn af stað. Árlega hafa bændur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar tekið á móti hópum á vorin og frætt þá um sveitastörfin. Bændur taka á móti pöntunum en á einhverjum bæjum er nánast upppantað fyrir vorið.
Áfram
Bændasamtökin vilja fresta afgreiðslu frumvarps um matvælalög
Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna segir ýmislegt vanta í frumvarp landbúnaðarráðherra um endurskoðun á undanþáguákvæðum Íslendinga vegna upptöku hluta af evrópsku matvælalöggjöfinni. BÍ geti ekki tekið afstöðu til frumvarpsins á grundvelli þeirra takmörkuðu upplýsinga sem liggi fyrir um ýmsa þætti þess.
Áfram
Forseti Alþjóðasamtaka búvöruframleiðenda biðlar til bænda og ríkisstjórna
Jack Wilkinson, forseti Alþjóðasamtaka búvöruframleiðenda (IFAP), skrifar grein í nýjasta tölublað Bændablaðsins þar sem að fram kemur að staðan á matvælabirgðum heimsins hafi ekki verið verri síðan 1974.
Áfram
Búnaðarþingi og fleiri áhugaverðum málum gerð góð skil
Nú er fimmta tölublað Bændablaðsins komið út en þar má lesa ítarlegar umfjallanir um nýafstaðið Búnaðarþing og þau málefni sem þar voru í brennidepli...
Áfram
Nýr og endurbættur bondi.is
Vefur Bændasamtakanna hefur fengið andlitslyftingu en í dag sunnudaginn 2. mars 2008 er nýi vefurinn opnaður. Með vefnum vonast Bændasamtökin til þess...
Áfram
97% bænda lesa Bændablaðið
Á síðastliðnu hausti var framkvæmd viðhorfskönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði meðal íslenskra bænda. Meðal þess sem spurt var um í könnuninni var hvort bændur læsu Bændablaðið. Fram kom að 86% lesa blaðið alltaf þegar það kemur út og 11% lesa það oft eða stundum. Einungis 3% lesa það sjaldan eða aldrei.
Áfram