Ráðunautafundur
Fundur ráðunauta verður haldinn í Bændahöllinni 8. og 9. mars nk.
Drög að endurskoðaðri dagskrá eru hér. Hún mun taka breytingum og uppfærð eftir því sem endanleg heiti erinda skýrast.
Við skipulagningu fundanna höfðum við í hyggju að auka sameiginlega dagskrá frá því sem verið hefur undanfarin ár. Hinsvegar er ástæða til þess að þetta tækifæri sé nýtt til þess að ráðunautar í einstökum búgreinum hittist og ræði sín sameiginlegu mál.
Þeim sem sækja ráðunautafundinn og vilja gista býðst gisting með morgunmat á Hótel Sögu á afsláttarverði, kr. 10 000 fyrir gistingu í eins manns herbergi og kr. 11 000 í tveggja manna herbergi.
Við hvetjum þá sem vilja nýta sér þennan kost að panta sem allra fyrst og geta þess um leið að viðkomandi sé þátttakandi á Ráðunautafundi 2012.