Fréttir og tilkynningar
Ný skýrsla um eflingu alifuglaræktar
Starfshópur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis um eflingu alifuglaræktar á Íslandi skilaði skýrslu um störf sín á dögunum. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að þar komi meðal annars fram þau viðhorf að alifuglarækt eigi að reka á sömu forsendum og aðrar búgreinar í landinu, með tilliti til fæðuöryggis, umhverfissjónarmiða, hollustu afurða og þeirra samfélagsáhrifa sem búgreinin hefur. Áfram
Góð sala á kjöti í september
Góð sala var á kjöti í september síðastliðnum. Samanborið við saman tíma í fyrra er aukningin 13,5%. Mest munar um 40% meiri sölu á svínakjöti en á sama tíma í fyrra. Þetta virðist mega skýra í ljósi þess að framleiðsla og sala svínakjöts í september 2007 var mun minni en í ágúst og október sama ár.Áfram