Beinar greiðslur
Mjólkurframleiðsla og nautgriparækt
Beingreiðslur mjólkur
Heildargreiðslumark er ákveðið árlega með reglugerð, heildarbeingreiðslur eru ákveðnar í fjárlögum á grundvelli samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslunnar 2005-2014.
Reglugerð um beingreiðslur mjólkur 2013
Skipting skv. gildandi reglugerðum við síðustu greiðslu:
A-hluti: 47,67% Er greiddur á greiðslumark óháð framleiðslu, að því tilskyldu að hún nái 90% af greiðslumarki uppgjörsársins.
B-hluti: 35,45% Greiðist á framleiðslu innan greiðslumarks. Greitt er fyrsta virkan dag hvers mánaðar fyrir innlegg næst síðasta mánaðar.
C-hluti: 16,88% Er álagsgreiðsla greidd á framleiðslu síðustu sex mánaða ársins 2013:
10% eru greidd í sep. 2013
15% eru greidd í okt. og nóv. 2013
20% eru greidd í des. 2013, jan. 2014 og feb. 2014
Greitt er fyrsta virkan dag hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar.
Að því marki sem beingreiðslur ganga ekki út eftir uppgjör innan greiðslumarks eru þær greiddar á hvert prósentustig framleiðslu umfram greiðslumark .
Einingaverð beingreiðslna reiknast þannig að heildarupphæð beingreiðslna ársins er deilt með heildargreiðslumarkinu.
Einingaverð á árinu:
|
Ár |
Greiðslumánuður |
A-hluti |
Uppgjörsár |
B-hluti |
C-hluti |
Uppgjörsár B/C hluta |
|
2013 |
janúar |
21,7663 |
2013 |
15,8857 |
18,8484 |
2012 |
|
2013 |
febrúar |
21,7663 |
2013 |
15,8857 |
17,5435 |
2012 |
|
2013 |
mars |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
0 |
2013 |
|
2013 |
apríl |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
0 |
2013 |
|
2013 |
maí |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
0 |
2013 |
|
2013 |
júní |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
0 |
2013 |
|
2013 |
júlí |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
0 |
2013 |
|
2013 |
ágúst |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
0 |
2013 |
|
2013 |
september |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
|
2013 |
|
2013 |
október |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
|
2013 |
|
2013 |
nóvember |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
2013 | |
|
2013 |
desember |
21,7663 |
2013 |
16,1866 |
2013 | |
Gripagreiðslur
Gripagreiðslur eru greiddar á mjólkur- og holdakýr sem skráðar eru í einstaklingsmerkingakerfinu Mark.Reglugerð um gripagreiðslur á lögbýlum
Sauðfjárrækt
Beingreiðslur
Beingreiðslur greiðast úr ríkissjóði til handhafa í samræmi við greiðslumark lögbýlisins eins og það er á hverjum tíma. Beingreiðsla 2013 er 6.519 kr. á hvert ærgildi.
Til að fá fullar beingreiðslur þarf handhafi að eiga að lágmarki 0,6 vetrarfóðraðar kindur að hausti fyrir hvert ærgildi greiðslumarks á komandi ári.
Beingreiðslur greiðast í níu jöfnum hlutum á tímabilinu febrúar-september. Þar af eru tveir hlutar greiddir í febrúar. Greiðsla fer fram fyrsta virkan dag hvers mánaðar.
Reglugerð um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2008-2013
Gæðastýringarálag
Framleiðendum á búum með samþykkta gæðastýringu er greitt álag dilkakjöt í flokkum E,U,R og O í fituflokkum 1,2, 3, og 3+. Greiðslan var 151,2934 kr. á kg fyrir árið 2012.Samkvæmt núgildandi reglugerð á að greiða fyrirframgreiðslu fyrir 15. mars sem er 35% af greiðslu fyrra árs til þeirra sem eru áfram þátttakendur í gæðastýringu og eru með með nægan ásetning til að lokagreiðsla dugi fyrir fyrirframgreiðslunni.
Greiðsla 95% vegna framleiðslu janúar - október fer fram 25. nóvember (þá er fyrirframgreiðslan dregin frá). Greiðsla 95% vegna framleiðslu í nóvember er 20. desember. Lokauppgjör fer fram eigi síðar en 5. febrúar.
Reglugerð um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu
Geymslugjald
Greidd er ákveðin krónutala í febrúar á framleitt kindakjöt fyrra árs.
Ullargreiðslur
Auglýsing um staðfestingu á verklagsreglum BÍ um ráðstöfun fjár vegna ullarnýtingar
Verðskrá - ullargreiðslur - 2013
Garðyrkja
Greitt er á framleiddar gúrkur, paprikur og tómata
Beingreiðslur árið 2010 og áætlun ársins 2011- pdf
Reglugerð um beingreiðslur í garðyrkju árið 2011
Handhafaskipti beinna greiðslna
Beingreiðslur greiðast ábúanda á lögbýli og á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða sem standa að búinu er þó heimilt að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör. Tilkynna skal Bændasamtökum Íslands allar breytingar á því hver teljist vera handhafi beingreiðslna.
Eyðublað fyrir handhafaskipti beingreiðslna mjólkur og sauðfjár
Eyðublað fyrir handhafaskipti beingreiðslna í garðyrkju