Beint í efni

SAMÞYKKTIR NAUTGRIPABÆNDA BÆNDASAMTAKA ÍSLANDS

1. gr.
Almennt

1.1. Nautgripabændur innan Bændasamtaka Íslands (BÍ) mynda nautgripadeild BÍ sem ber nafnið Nautgripabændur BÍ, skammstafað NautBÍ, sem er hluti af Bændasamtökum Íslands. Heimili og varnarþing deildarinnar er á skrifstofu Bændasamtaka Íslands.

2. gr.
Tilgangur

2.1. Tilgangur deildar Nautgripabænda BÍ er að sameina þá, sem stunda nautgriparækt á Íslandi í atvinnuskyni um hagsmunamál sín og vinna að hagsmunum þeirra.

3. gr.
Félagsaðild

3.1. Rétt til aðildar að deild Nautgripabænda BÍ hafa þeir einstaklingar sem stunda nautgriparækt og eru fullgildir aðilar að Bændasamtökum Íslands skv. 3. gr. í samþykktum BÍ.

3.2. Einungis félagsmenn með fulla aðild, sbr. 1. mgr. 3. gr. og starfsmenn Bændasamtaka Íslands geta gegnt trúnaðarstörfum fyrir deildina.

3.3. Félagsaðild fellur niður uppfylli félagsmenn ekki öll skilyrði um félagsaðild, skv. 1. mgr. 3. gr.

4. gr.
Deildarfundur

4.1. Deildarfundur Nautgripabænda BÍ skal haldinn árlega þar sem mótuð er stefna fyrir búgreinina næstu árin.

4.2. Deildarfund Nautgripabænda BÍ sitja með fullum réttindum þeir fulltrúar sem hafa verið kosnir af félagsmönnum deildarinnar. Einungis þeir félagsmenn sem uppfylla skilyrði 1. mgr. 3. gr. eru kjörgengir.

4.3. Um alla fresti í aðdraganda deildarfundar Nautgripabænda BÍ gilda samþykktir Bændasamtaka Íslands. Á þetta við um formlega boðun fundarins, gildistöku félagatals, framboðsfrest fulltrúa, kosningar fulltrúa, hvenær fulltrúalisti skuli liggja fyrir, innsendingar mála, hvenær og hvaða gögn skuli berast fulltrúum, hvenær nefndarstarf fer fram sem og hvenær forunnin þingmál skulu berast stjórn deildarinnar.

4.4. Deildarfundur getur ákveðið að taka til afgreiðslu mál sem koma fram eftir að tilgreindur frestur rennur út, sbr. 2. mgr. 4. gr., ef meiri hluti fundarins samþykkir.

4.5. Stjórn deildar Nautgripabænda BÍ ákvarðar fjölda fulltrúa sinnar deildar sem sitja deildarfund Nautgripabænda BÍ með tillögu- og atkvæðisrétt. Tryggja þarf landfræðilega dreifingu. Kjördeildir skulu miðast við svæði neðangreindra félaga:

1. Mjólkursamlag Kjalarnesþings                                                   

2. Kúabændafélagið Baula á Vesturlandi

3. Félag Nautgripabænda við Breiðafjörð

4. Félag kúabænda í Ísafjarðarsýslu

5. Nautgriparæktarfélag Vestur Húnavatnssýslu

6. Félag kúabænda í Austur Húnavatnssýslu

7. Félag kúabænda í Skagafirði

8. Félag eyfirskra kúabænda

9. Félag þingeyskra kúabænda

10. Félag nautgripabænda á Héraði og Fjörðum

11. Nautgriparæktarfélag Vopnafjarðar

12. Nautgriparæktarfélag Austur-Skaftafellssýslu

13. Félag kúabænda á Suðurlandi

4.6. Skipting fulltrúa á milli kjördeilda fer eftir fjölda kjörgengra félagsmanna í hverri kjördeild. Miða skal við að hámarki 36 fulltrúa nautgripabænda inn á deildarfund.

4.7. Kjósa þarf jafn marga deildarfundarfulltrúa og viðkomandi kjördeild hefur á deildarfundi. Varamenn eru þeir sem á eftir koma í atkvæðamagni. Einnig er heimilt að skila auðu. Ef enginn bauð sig fram í kjördeildinni eða færri en fjöldi fulltrúa deildarfundar segir til um, verður að skrá inn nöfn félagsmanna í viðkomandi kjördeild.

4.8. Ef enginn fulltrúi er kosinn í einhverri kjördeild, færist sá fulltrúi yfir í þá kjördeild sem er næst því að ná inn næsta fulltrúa og svo áfram þar til deildarfundur er fullmannaður.

4.9. Heimilt er að hafa kosningu fulltrúa inn á deildarfund rafræna. Skal þá notast við viðurkennda rafræna auðkenningu.

4.10. Rafræn kosning til deildarfundar skal standa í tvo sólarhringa.

4.11. Komi upp álitamál vegna kosningar fulltrúa deildarfundar skal stjórn Nautgripabænda BÍ úrskurða um málið í samráði við stjórn BÍ. Kæra út af kosningu fulltrúa deildarfundar skal berast deild Nautgripabænda BÍ eigi síðar en viku eftir að niðurstöður kosninga liggja fyrir.

4.12. Stjórnarmenn deildar Nautgripabænda BÍ og varamenn þeirra skulu hafa málfrelsi og tillögurétt á deildarfundi. Deildarfundur er opinn til áheyrnar öllum félagsmönnum deildarinnar, sbr. 1. mgr. 3. gr. Óski fleiri aðilar, en þeir sem getið er um í 1. málsl. þessarar málsgreinar, eftir því að sitja fundinn með málfrelsi skal það borið undir fundinn sem veitir eftir atvikum viðkomandi aðilum samþykki eða ekki til slíks.

4.13.Kjörnir fulltrúar hafa einir atkvæðisrétt á deildarfundi og ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum við atkvæðagreiðslu. Tillaga fellur á jöfnu.

4.14. Á dagskrá deildarfundar skal vera:

  1. Skýrsla formanns deildar og sérfræðings Nautgripabænda BÍ.
  2. Tillögur og erindi til umræðu og afgreiðslu, sem borist hafa með löglegum fyrirvara.
  3. Kosning stjórnar skv. 6. gr.
  4. Önnur mál.

4.15. Stjórn felur  formanni, stjórnarmanni og/eða starfsmönnum BÍ að halda utan um framkvæmd deildarfundar, þ.á.m. félagatal, kjörgengi-, framboð- og kosningu fulltrúa, dagskrá fundarins og annað sem til fellur.

4.16. Þeir sem gegna trúnaðarstörfum fyrir deildina skulu fá greiddan útlagðan kostnað vegna starfa sinna. 

4.17. Heimilt er að skipa uppstillinganefnd.

4.18. Heimilt er að halda deildarfund með aðstoð fjarfundarbúnaðar.

4.19. Á deildarfundi Nautgripabænda gilda þingsköp Bændasamtaka Íslands. Á deildarfundi er þó nóg að hafa einn varafundarstjóra. Stjórn Nautgripabænda ber ábyrgð á kjörgengi fulltrúa á deildarfundi.

5. gr.
Aukadeildarfundur

5.1. Deild Nautgripabænda BÍ er heimilt að halda aukadeildarfund. Um slíkan fund gilda ákvæði samþykkta Bændasamtaka Íslands er varða aukadeildarfundi búgreina.

5.2. Kjör fulltrúa á deildarfund gildir fram að næstu kosningu fulltrúa inn á deildarfund. Atkvæðis- og tillögurétt á aukadeildarfundi hafa því einungis réttkjörnir fulltrúar deildarfundar.

6. gr.
Skipan stjórnar

6.1. Stjórn Nautgripabænda BÍ skal skipuð fjórum einstaklingum auk formanns, sem allir skulu kosnir á deildarfundi, formaður til tveggja ára en aðrir stjórnarmenn til eins árs. Fyrst skal kjósa formann, næst fjóra fulltrúa í stjórn og loks þrjá varamenn. Kosningar skulu vera leynilegar. Stjórn kýs sér varaformann og ritara.

6.2. Ef að formaður hættir störfum á tímabilinu, skal varaformaður sitja sem formaður fram að næsta deildarfundi. Þá skal kjósa nýjan formann á næsta deildarfundi eftir að hann hefur látið af störfum, skal formaður kjörinn til eins starfsárs ef meira en eitt starfsár er eftir af kjörtímabili fráfarandi formanns.

6.3. Formaður Nautgripabænda BÍ eða annar stjórnarmaður skal bjóða sig fram í stjórn BÍ.

6.4. Löglega kosin stjórn deildarinnar er jafnframt stjórn Landssambands kúabænda, LK.

7. gr.
Hlutverk stjórnar

7.1. Hlutverk stjórnar Nautgripabænda BÍ er að vinna að hagsmunum nautgripabænda innan BÍ í gegnum búgreinadeild, annast málefni milli félagsfunda og sjá um að þau séu jafnan í sem bestu horfi.

7.2. Undirskriftir þriggja stjórnarmanna þarf til að skuldbinda deildina.

7.3. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda þegar ástæða þykir til og stjórnar þeim. Þó er honum skylt að boða fund ef tveir stjórnarmenn óska þess, enda sé þá fundarefnið tilgreint. Stjórnarfundur er lögmætur sé meirihluti stjórnar á fundi. Stjórn er heimilt að halda fundi með aðstoð fjarfundarbúnaðar.

7.4. Stjórn Nautgripabænda BÍ skal skrá fundargerðir á fundum sínum. Stjórnarmenn skulu undirrita fundargerðir með rafrænum hætti og skal stjórn sjá til þess að þau afrit séu varðveitt með tryggilegum hætti. Skulu samþykktar fundargerðir birtar á mínum síðum BÍ svo fljótt sem verða má. Stjórn er heimilt að skrá einstaka liði í fundargerð eða fundargerðir, sé þess þörf í trúnaðarbók og birta ekki á mínum síðum BÍ.

8. gr.
Kjör Búnaðarþingsfulltrúa

8.1. Sitjandi formaður og stjórn deildar, fyrir deildarfund hvers árs, eru sjálfkjörnir fulltrúar deildarinnar á Búnaðarþingi það ár.

8.2. Aðra Búnaðarþingsfulltrúa Nautgripabænda BÍ en þá sem getið er um í 1. mgr. 8. gr., skal kjósa í rafrænni kosningu meðal deildarfundarfulltrúa Nautgripabænda, þegar fulltrúalisti deildarfundar liggur fyrir. Kosningin skal standa að hámarki í tvo sólarhringa. Að lokinni kosningu Búnaðarþingsfulltrúa skal kjósa varabúnaðarþingsfulltrúa, jafn marga og fjöldi fulltrúa á Búnaðarþingi er. Kosningu skal vera lokið innan tveggja vikna frá kosningu fulltrúa deildarfundar.

8.3. Um fjölda Búnaðarþingsfulltrúa og hvenær fulltrúalisti skal að liggja fyrir gilda samþykktir Bændasamtaka Íslands.

9. gr.
Breytingar á samþykktum

9.1. Samþykktum þessum má aðeins breyta á deildarfundi eða auka deildarfundi, sem boðaður er til þess sérstaklega. Um boðun fundarins gilda samþykktir Bændasamtaka Íslands. Ná þær því aðeins fram að ganga að meirihluti fundarmanna greiði þeim atkvæði.

10. gr.
Annað

10.1. Leggist starfsemi Nautgripabænda BÍ niður skulu eigur þess ganga til BÍ.

11. gr.
Samþykktir Bændasamtaka Íslands

11.1. Þar sem samþykktum þessum sleppir gilda samþykktir Bændasamtaka Íslands. 

12. gr.
Gildistaka

12.1. Ákvæði samþykkta þessara gilda frá og með 26. nóvember 2025.

Þannig samþykkt á aukadeildarfundi Nautgripabænda BÍ 26. nóvember 2025.